Nýtt hugarfar.

Guð elskar þig!

Það er vilji Guðs að lækna þig, hjálpa þér og gefa þér von. Ef þú stendur frammi fyrir veikindum, vonleysi, örvæntingu eða fjárhagslegum erfiðleikum í dag, þá er það Guðs vilji að leysa þig og færa líf þitt til betri vegar. Vegar réttlætis, blessunar, gleði og friðar.

Guð vonarinnar fylli yður öllum fögnuði og friði í trúnni, svo að þér séuð auðugir að voninni í krafti Heilags Anda. Amen.


Rauða Kverið.

Einn af spámönnum vantrúarinnar hefur lagt fram spurningu hvort það sé ekki mannréttindi að gefa ungmennum Íslands Rauða Kverið hans Maós formanns eins og að gefa Nýja-Testamentið frá Gideon mönnum.

Ég spyr mig af hverju rauða kverið?? Jú, auðvitað Maó formaður var trúleysingi, bannaði alla trú nema trú á það sem hann boðaði, hann hataði eflaust Jesú ( ég veit það svo sem ekki, en geri fastlega ráð fyrir því).

Hörmungar áttu sér stað í útópí-trúleysis landinu. Mig langar til að vitna í smá brot af því sem Maó formaður segir, þetta er í þýðingu Brynjólfs Bjarnasonar, Guðsafneitunar manns, gott er fyrir alla guðsafneitara og vantrúarmenn að taka þetta sér til fyrirmyndar.

Rauða Kverið. Úr ritum eftir Maó Tse-Tung.

Bls. 126-127 " Til þess að tengjast fólkinu verða menn að starfa í samræmi við þarfir og óskir þess. Allt sem gert er fyrir fjöldann verður að miðast við þarfir hans, en ekki óskir einhvers einstaklings, hversu vel sem hann vill. Þess eru mörg dæmi, að í raun og veru hefur fjöldinn þörf fyrir ákveðna breytingu, en hann en hann gerir sér ekki hugmyndarlega grein fyrir þessari þörf, vill ekki breytinguna, og hefur ekki ráðið við sig að framkvæma hana. Vér eigum ekki að framkvæma breytinguna með starfi voru fyrr en allur þorri fólksins hefur gert sér grein fyrir þörfinni, vill framkvæma breytinguna og er ráðinn í að gera það.

Að öðrum kosti munum við einangra oss frá fjöldanum. Ef fólkið vill ekki og gerir sér ekki grein fyrir þessum hlutum, verður hvert það starf, sem krefst þátttöku fjöldans, tilburðir einir og hlýtur að mistakast.

Hér verður að gæta tveggja meginreglna. Annarsvegar  verðum vér að líta á raunverulegar þarfir fjöldans, en hitt sem vér ímyndum oss um þær, og hins vegar verður að hafa óskir fólksins í heiðri, það verður sjálft að skoða hug sinn og taka ákvörðun fyrir það."

Feitletrunin er mín. Rauða kverið var gefið út af Heimskringlu 1967.

Vantrúarmenn og þeir sem hafna Guði verða að gera sér grein fyrir því að það er enginn sem neyðir Jesú Krist upp á nokkurn mann, menn taka afstöðu með eða á móti honum. Kristur hefur bjargað mannslífum, leitt menn frá myrkri til ljóss, frá drykkjuskap til að vera alsgáðir og nýtir þjóðfélags þegnar. Trúleysi leiðir menn til vansældar, það vill svo til að ég þekki báðar þessar hliðar og þekki marga aðra sem hafa reynt trúleysi, vantrú og það sem af því hlýst, en tekið sinnaskiptum með breyttu hugarfari, sem leiddi þá til trúar á Jesú Krist.

Guð blessi þá sem þetta lesa í Jesú nafni. Amen.


Framtíð Íslands??

Gaman hjá Dönum eða hitt þá heldur, ef þetta gengur í gegn. Hvernig verður þetta hjá okkur á Íslandi??

Vinstrimenn styðja margir hverjir íslam gegn gyðingum og berjast fyrir því að gyðingum sé úthýst, úr samfélagi manna. Íslam kemur og er komið hingað til lands, hvenær verður svo Ísland að "Sovét-Íslandi" og með sharia lögum?? Um leið og vantrúarmenn og íslamistar hafa rutt kristnum gildum og mönnum úr vegi.

Praveen Togadia hefur gefið út að afhöfðva skuli alla þá sem snúa hidúum til kristinnar trúar, hvað gera íslamistar við þá sem snúa frá islam til kristinnar trúar?? Þeim er ekki boðið upp á kaffi eða kökur er það nokkuð??

Við viljum ekki moskur á Íslandi, við viljum vera kristin þjóð í einum anda, anda kærleikans.


mbl.is Vilja sjaríalög í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyllibyttur lamdar

Mannréttindafrömuður vill láta berja Alka. Alkóhólismi er böl en að berja fólk fyrir það að vera alki er það ekki einum of mikið?? Hefur þessi maður ekki heyrt um 12 spora kerfið eða AA samtökin. Alkar fá 3 aðvaranir og verða þeir lamdir. Kannski er betra að láta berja sig heldur en að drepa sig en best er auðvitað að láta renna af sér, það geta allir alkar ef vilji er fyrir hendi hjá þeim.
mbl.is Vill láta hýða alkóhólista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjúskaparbrot í Íslam.

Það þykir eðlilegt í múslímskum löndum að drepa þá sem fremja hjúskaparbrot. Grýta skal viðkomandi.

Í þessu tilviki voru það 2 konur, ekkja og dóttir hennar. Ég hélt að það hefði þurft að vera vitni að atburðinum og að báðir aðilar yrðu dæmdir, ekki aðeins annar aðilinn.

Reyndar minnir þetta mig á frásögnina um hórseku konuna sem Farísear og fræðimenn komu með staðna að verki. Það sem mér finnst skrýtið í því dæmi er að aðeins konan var tekin en maðurinn fékk að sleppa. Hún átti að grýtast, en miskunnsemi Guðs kom því til leiðar að hún slapp með skrekkinn.

Er engin miskunnsemi til í Íslam??


mbl.is Grýttu og skutu mæðgur til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sælir eru hógværir.

Ó ljóssins faðir, lof sé þér,

að líf og heilsu gafstu mér

og föður minn og móður.

Nú sest ég upp, því sólin skín,

þú sendir ljósið þitt inn til mín.

Ó hvað þú, Guð, ert góður.

Vita skalt þú það að frá elstu tímum hafa mennirnir fært guðum fórnir eða gjafir. Yfirleitt það besta sem þeir áttu. Menn héldu að guðirnir hefðu velþóknun á dýrum og gróðri jarðar. Stundum fórnuðu þeir mönnum, aðalega börnum og þrælum.

Tilgangur þessara fórna var að blíðka guðina eða þakka þeim fyrir einhvern veittan hlut sem beðið hafði verið um, góða uppskeru eða hernaðarsigur. Einnig var fórnað til að fá fyrirgefningu þeirra eða að guðirnir heimtuðu fórnir.

Gyðingar fórnuðu dýrum og gróðri jarðar en síðar komust þeir að því að Guð heimtaði ekki fórnir af þeim heldur vildi hann að þeir sýndu hverjum öðrum miskunnsemi eins og hann er miskunnsamur. Hann vildi að þeir breyttu um hugarfar.

Laun syndarinnar er dauði. Róm 5:23.

Vegur syndarinnar er ævinlega þessi: Efi og vantraust (vantrú) á orði Guðs, óhlýðni, hræðsla við Guð og flótti burt frá honum og tilhneiging til að koma sök á aðra.

Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá. Sálm 37:5

Guð blessi alla þá sem þetta lesa í Jesú nafni. Amen.


Morð eða ekki morð??

Hver er munurinn á að drepa barnið í móðurkvið eða þegar það er komið úr burðarliðnum??

Ef barnið hefði verið aflífað í móðurkviði þá hefðu engin eftirkvöst verið er það nokkuð?? Hvenær er morð, morð??

Ég samhryggist foreldrunum svo sannarlega. Ég vil trúa því að læknirinn hafi gert óviljandi mistök.


mbl.is Sýknuð af líknardauða barns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Shalom

Það eru gleðifréttir að Gilad Shalit skuli loksins verða látin laus. Margir hafa beðið fyirir lausn hans. Gott er að hann komist heim til fjölskyldu sinnar. Guð blessi Ísrael. Shalom Israel.
mbl.is Verður loks látinn laus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæpamenn

Hvernig í ósköpunum trúir því nokkur maður að þessi illmenni hafi haft nokkuð annað í huga annað en að nauðga konunni. Nauðgun er glæpur sama hvernig manneskjan lítur út eða hvernig hún hugsar. Að segja það að menn sem sáu árásina séu saklausir af því að þeir tóku ekki þátt í ódæðinu er fáránleg, þeir eru samsekir.

Það þarf að taka á svona glæpamönnum, best væri að senda þá í meðferð hjá múslimum eða til Kína, þeir kunna að taka á svona illmennum. Nauðgun er ógeðslegur glæpur!!


mbl.is Nauðga lesbíum til að „lækna“ þær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Iran er stjórnað af vondum mönnum!

Í Íran er ekki trúfrelsi það veit ég. Vinur minn einn kemur frá Íran, hans trú var önnur en þeirra sem stjórna í landinu. Hans átrúnaður var sá gamli áður en Múhammeð kom með boðskap sinn. Bræður hans voru hengdir fyrir andóf (það sögðu stjórnvöld allavega) en þeir vildu ekki taka við Múhammeð.

Hvernig stendur á því að maður sem fer frá Múhammeð til Krists þurfi að týna lífinu vegna þess? Er það gleðiboðskapur og friðarboðskapur Múslima, er það sem koma mun hér á Íslandi?? Viljum við mosku hér á Íslandi. Viljum við trúarofbeldi, heiðursmorð, hryðjuverk (sjálfsmorðsárásir). Ég vil það ekki. Verður þessi maður sýknaður?? Ég held ekki, hann verður hengdur eða grýttur, kannski krossfestur.

 Biðjum fyrir lausn Írans í Jesú nafni. Amen.


mbl.is Dæmdur til dauða fyrir að taka upp kristna trú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Aðalbjörn Leifsson
Aðalbjörn Leifsson
Kjötiðnaðarmaður, Guðsmaður, Kristinn Zionisti og Sjálfstæðismaður flokksbundinn
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 55440

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband